Sergio García hættir í LIV og stefnir á Ryder-bikarinn á Adare Manor
Sergio García leikur á DP World Tour árið 2027 eftir fjögur ár í LIV-deildinni. Hann vill komast í Ryder-lið Lukes Donalds, en enginn hefur fengið fleiri stig í keppninni.

García greindi frá ákvörðuninni á samfélagsmiðlum á fimmtudag, þremur vikum eftir að David Puig, liðsfélagi hans í Fireballs, tilkynnti að hann hætti í LIV. García vann tvö mót í LIV-deildinni og var fyrirliði Fireballs frá árinu 2022. Fyrir um mánuði krafðist lögmaður hans þess fyrir gjaldþrotadómstólnum, sem fer með mál LIV, að samningi hans við deildina yrði rift.
„Á næsta tímabili leik ég á DP World Tour,“ skrifaði García og útilokaði ekki að snúa aftur á PGA-mótaröðina. Það getur hann þó ekki fyrr en í ágúst 2027 því PGA-mótaröðin dæmir LIV-kylfinga í tólf mánaða bann, að sögn Sky Sports.
García er 46 ára, hefur leikið tíu sinnum í Ryder-bikarnum og fengið 28,5 stig, fleiri en nokkur annar. Síðast lék hann fyrir Evrópu á Whistling Straits árið 2021. Hann sagði sig úr DP World Tour í maí 2023 en sótti aftur um aðild einu og hálfu ári síðar. Þá greiddi hann sektir sem nema meira en milljón dala, að sögn Golf Channel.
Hann er nú í 146. sæti heimslistans. Næst verður keppt um Ryder-bikarinn á Adare Manor á Írlandi í september 2027.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · MótaraðirnarNýtt
Julien Sale höggi á undan þremur fyrir lokadaginn á Alcanada
- Golf á Íslandi · KlúbbarnirNýtt
Hvaleyrarvöllur opnaður aftur fyrir félagsmenn Keilis
- Heimsgolfið · LETNýtt
Ching Huang efst fyrir lokahringinn á Wistron Ladies Open
- Heimsgolfið · LPGANýtt
Miyu Yamashita efst fyrir lokahringinn á Maybank en Yan Liu nálgast
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Andrew Novak jafnaði mótsmetið á Mexico Open og er þremur höggum á undan
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Úrtökumótið hálfnað hjá Dagbjarti, Ragnari Má og Sigurði Arnari