Ching Huang efst fyrir lokahringinn á Wistron Ladies Open
Ching Huang frá Taívan lék þriðja hringinn á Wistron Ladies Open á 65 höggum og er höggi á undan Casöndru Alexander frá Suður-Afríku fyrir lokadaginn.

Huang fékk átta fugla, þar af fjóra í röð frá 5. holu, og eini skollinn kom á 9. holu. Hún er samtals á fjórtán höggum undir pari. Huang hefur þegar unnið mót á taívönsku mótaröðinni í ár. „Dræverinn var ágætur í dag og járnin ekki alveg fullkomin, en skorið var fullkomið,“ sagði hún í samtali við LET-mótaröðina. Alexander var efst eftir fyrsta hring og lék á 68 höggum í dag.
Hannah Screen frá Englandi er þriðja á tólf höggum undir pari og landa hennar, Mimi Rhodes, er fjórða á ellefu höggum undir pari. Cheng-Hsuan Shih var efst eftir tvo hringi en lék á 74 höggum og er fimmta. P.K. Kongkraphan jafnaði vallarmetið með 63 höggum á föstudag en lék á 75 höggum í dag og er jöfn í 11. sæti. Yani Tseng, sem á titil að verja, er jöfn í 35. sæti á einu höggi undir pari. Síðasti ráshópurinn fer af stað klukkan 02:37 að íslenskum tíma aðfaranótt sunnudags.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · LPGANýtt
Miyu Yamashita efst fyrir lokahringinn á Maybank en Yan Liu nálgast
- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Andrew Novak jafnaði mótsmetið á Mexico Open og er þremur höggum á undan
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Úrtökumótið hálfnað hjá Dagbjarti, Ragnari Má og Sigurði Arnari
- Lífið í golfinu · FréttirNýtt
Rick Shiels dró sjö milljóna dala kröfu á hendur LIV Golf til baka
- Heimsgolfið · MótaraðirnarNýtt
Julien Sale efstur á lokamóti HotelPlanner-mótaraðarinnar
- 19. holan · GolflífiðNýtt
Smáauglýsingar golfhaustsins: logn óskast, sveiflan týnd
