Miyu Yamashita efst fyrir lokahringinn á Maybank en Yan Liu nálgast
Miyu Yamashita lék þriðja hringinn á Maybank Championship á 67 höggum og er á 18 undir pari. Yan Liu frá Kína lék á 63 höggum og er jöfn Pauline Roussin-Bouchard í 2. sæti.

Liu fékk níu fugla, tvo skolla og örn. Hún fékk örninn á 18. holu þegar hún sló boltann ofan í holuna af um 100 metra færi. Fyrir hringinn var hún sjö undir pari, sex höggum á eftir Yamashita sem var þá efst. Marissa Tojai, áhugakylfingur frá Taílandi, og Robyn Choi frá Ástralíu eru jafnar í 4. sæti á 14 undir pari. Charley Hull lék á 72 höggum og er jöfn í 18. sæti.
Yuri Yoshida, sem vann BMW Ladies Championship í Suður-Kóreu um síðustu helgi, lék á 66 höggum og er á 11 undir pari.
Það helsta úr golfinu í pósthólfið – skráðu þig og fáðu fyrsta bréfið.
Fylgja Golfinu á FacebookÞá birtast nýjustu fréttirnar í straumnum þínum.
Nýjast á Golfinu
Allt nýtt- Heimsgolfið · PGA TourNýtt
Andrew Novak jafnaði mótsmetið á Mexico Open og er þremur höggum á undan
- Heimsgolfið · Golfið í morgunNýtt
Úrtökumótið hálfnað hjá Dagbjarti, Ragnari Má og Sigurði Arnari
- Lífið í golfinu · FréttirNýtt
Rick Shiels dró sjö milljóna dala kröfu á hendur LIV Golf til baka
- Heimsgolfið · MótaraðirnarNýtt
Julien Sale efstur á lokamóti HotelPlanner-mótaraðarinnar
- 19. holan · GolflífiðNýtt
Smáauglýsingar golfhaustsins: logn óskast, sveiflan týnd
- Afrekskylfingar · ÁhugamennNýtt
Róbert Leó jafn í 9. sæti á síðasta móti Manhattan í haust
