Golftól · Vallarforgjöf
Hve mörg högg færðu?
Vallarforgjöfin breytist eftir velli og teigum. Sláðu inn forgjöfina þína og tölurnar af skorkortinu – við reiknum restina eftir reglum WHS.
Formúlurnar
- Vallarforgjöf = forgjöf × (vægi ÷ 113) + (vallarmat − par), námunduð að heilli tölu.
- Leikforgjöf = vallarforgjöf × hlutfall leikformsins, námunduð að heilli tölu.
- Á 9 holum er notaður helmingur forgjafarinnar og vallarmat og par 9 holnanna.
- Skormismunur = (113 ÷ vægi) × (leiðrétt skor − vallarmat). Forgjöfin er meðaltal 8 bestu af 20 síðustu skormismunum.
Gott að vita
Vægið segir til um hve miklu erfiðari völlurinn er fyrir kylfing með háa forgjöf en fyrir kylfing með enga. Meðalvægi er 113.
Opinber forgjöf og skráning hringja er í GolfBox. Mótsstjórn getur notað önnur hlutföll; þá gilda mótsreglurnar. Tölur um alla velli landsins: Golfvellir.
Fleiri golftól