Golftól · Vegalengdir í dag
Hve langt fer hver kylfa í dag?
Kuldi og vindur stytta höggin meira en flestir halda. Sláðu inn lengdina á 7-járninu og veldu völlinn – við sækjum veðrið og reiknum út lengdina með hverri kylfu.
Svona reiknum við
- Hinar kylfurnar eru áætlaðar út frá 7-járninu með hlutföllum sem eru dæmigerð fyrir áhugakylfinga. Þínar eigin tölur úr golfhermi eða mæli eru alltaf betri.
- Hiti: boltinn flýgur um 1,7 % styttra fyrir hverjar 10 gráður undir 15 °C, því kalt loft er þéttara og boltinn stinnari.
- Vindur: mótvindur styttir höggið um það bil 2 % fyrir hvern m/s, en meðvindur lengir það aðeins um 1 % á m/s. Hliðarvindur styttir lítillega og ýtir boltanum til hliðar.
- Vindurinn er mældur í 10 metra hæð. Í hvössu veðri eru áhrifin mest á háum höggum.
Í köldu veðri
Geymdu boltana inni í hlýjunni fram að hring og hafðu varabolta í vasanum frekar en í töskunni. Kaldur bolti flýgur styttra en hlýr.
Í vindi borgar sig oft að taka einni kylfu meira og slá rólegra. Lægra höggið spinnur minna og vindurinn nær síður tökum á því.
Veðrið á öllum völlum landsins: Golfveður.
Fleiri golftól · öll tólin
KaddýinnLeikáætlun fyrir hverja holu á 14 íslenskum völlum og á Spáni, skorkort, punktar og hollið saman.ÞjálfarinnHvar tapar þú höggum? Tölur hringsins og sex stöðvar á æfingasvæðinu, bornar saman við kylfinga með sömu forgjöf – og æfingaplan í fjórar vikur.VallarvalBesti golfvöllurinn eftir veðri, akstri, stöðu vallarins og vallargjaldi.Golfmátun heimaKylfulengd, gripstærð, skaft og bolti sem henta þér – fimm stutt skref.VerðmatHvað eru kylfurnar þínar virði notaðar – og hvað býður búðin í uppítöku?DómarinnGolfreglurnar á mannamáli úti á velli. Pikkaðu á staðinn á holunni, svaraðu einni til þremur spurningum og sjáðu á mynd hvar þú mátt láta falla – með staðarreglum vallarins.